Skilmálar
Síðast uppfært: 15. ágúst 2026
Þjónustan
Sett er hugbúnaðarkerfi fyrir padelklúbba og leikmenn: vallabókanir, stigatöflur á velli, mótahald og leikjatölfræði. Þjónustan er rekin af IFFS ehf. Aðgangur leikmanna er gegnum app.settsport.is og öpp; aðgangur klúbba gegnum console.settsport.is.
Aðgangur
Þú berð ábyrgð á eigin aðgangi og að aðgangsupplýsingar séu réttar. Þú getur eytt aðganginum þínum hvenær sem er í appinu (Minn leikur → Stillingar → Eyða aðgangi).
Bókanir og afbókanir
Bókanir eru gerðar hjá viðkomandi klúbbi og hver klúbbur setur eigin reglur um verð, opnunartíma og afbókunarfrest. Afbókun innan frestsins er gerð í appinu; eftir að fresturinn rennur út þarf að hafa samband við klúbbinn beint. Greiðslur fyrir bókanir fara eftir fyrirkomulagi hvers klúbbs.
Leikjagögn og tölfræði
Úrslit og tölfræði verða til í leikjum á völlum með Sett-búnaði. Skráð úrslit eru hluti af leikjasögu allra þátttakenda leiksins. Um meðferð persónuupplýsinga fer samkvæmt persónuverndarstefnu.
Ábyrgð
Þjónustan er veitt eins og hún er hverju sinni. Við leggjum okkur fram um samfelldan rekstur en ábyrgjumst ekki órofna virkni. Sett ber ekki ábyrgð á framkvæmd bókana, aðstöðu eða þjónustu einstakra klúbba.
Breytingar
Skilmálar geta breyst; verulegar breytingar eru kynntar í þjónustunni. Áframhaldandi notkun eftir breytingar felur í sér samþykki.
Samband
Spurningar um skilmálana: padel@settsport.is.